Ég fer í fríið - ég fer í fríið - ég fer í fríið
Komin í langþráð sumarfrí, leikjanámskeiði lokið og við tekur mánaðar frí jeij. Nokkuð stíf dagskrá framundan, á suðurleið á þriðjudag, 1 - 2 - Selfoss og Hveró að vitja vina og vandamanna, fótboltamót í borginni, Damien fyrir austan, Innipúkinn?, stórafmæli, Köben o.fl. o.fl.
Hef sigrast á hræðslu minni við börn, segi samt ekki að þetta hafi ekki tekið töluvert á og að ég hafi ekki verið komin undir sæng um kvöldmat í gær. En get amk horfst í augu við þau þegar ég mæti þeim úti á götu og jafnvel talað við þau.
Er reyndar ennþá á Ace Ventura vaktinni út vikuna en verð að fá einhvern til að hlaupa í skarðið, ekki allir sem geta sinnt svo mikilvægu hlutverki.
Sumarið ætlar ekkert að koma, maður hangir í lauginni í von um að ná einni eða kannski tveimur freknum enn það skilar engu, verður samt líklega þannig að okkur tekst að taka rigninguna með okkur á suðurlandið þegar við leggjum land undir fót, er samt að reyna að Secret - tækla þetta 
